Aug 4, 2005
Komin Heim!!!

                         

Hæ hæ... Búið að vera soldið langt síðan ég skrifaði seinast... Seinustu 2 vikur hef ég verið úti í Danmörku og hafði þá hvorki tíma né tölvu til að blogga...

Ferðina sjálfa fékk ég frá mömmu og pabba (og kexkökunum (krakkar=crackers=kexkökur)) í afmælisgjöf. Ég fór 18. júlí með systir afa Halldórs (María Kristín) + manni hennar (Birgir) og barnabarn þeirra sem heitir Birgir Már, en hann er jafngamall mér.

Þau fóru með mig upp á flugvöll og við fórum saman í flugvél og til Kaupmannahafnar. Flugið var bara mjög skemmtilegt. Sjónvarpsefnið var reyndar alveg svakalega leiðinlegt  (einhver þáttur um heilann) en ég og Birgir Már skemmtum okkur alveg  ágætlega saman.

Í Kaupmannahöfn leigðu þau bíl og við keyrðum heim til annarrar systir afa Halldórs, s.s. systir Maríu Kristínar sem heitir Anna María. Við gistum þar eina nótt... Daginn eftir keyrðum við. Anna María, María Kristín, Birgir og Birgir Már voru á leið í sumarbústað Siggu (þriðja systir afa) sem er á eyjunni ALS en ég var á leiðinni til sonar Siggu, Halldór og fjölskyldu hans (Stine, konan hans + börnin þeirra Agnes (7 ara) og Lauritz (3 ara)). Við keyrðum alveg að stað sem heitir Middlfart þar sem Stine hitti okkur og tók mig.

Við keyrðum saman heim til þeirra í Arhug (árósum). Ég var með þeim allan tímann, en við vorum í 5 daga í Arhus og síðan 9 daga í Sumarhúsi Siggu... Í þessum tvem vikum gerði ég margt skemmtilegt... Ég lærði að tala og skilja dönsku betur, Ég fór í Legoland sem var alveg GEÐVEIKT... Við fórum saman, ég, Stine, Agnes og Lauritz á stað sem heitir "Den Gamle By" sem var gamall danskur ferðamannabær sem sýndi hvernig lífið var í gamla daga þar... + þetta fór ég í stærsta sirkús Danmerkur - Sirkus Benneweis og í Danfoss Universe... Það tæki mig langan tíma að útskýra allt en það eina sem ég get sagt er að ég hitti margt skemmtilegt fólk, lærði að þekkja frændfólk mitt 1000 sinnum betur en ég gerði, ég prófaði marga hluti, smakkaði mikinn og margvíslegan mat og átti bara ÆÐISLEGAN tíma.

                                                                                                         Núna er ég heima og á morgun er seinasti vinnudagurinn minn, en ég er búin að fá UMSÖGNina mína... hér er hún...

Ég fékk MJÖG GOTT í öllu sem hægt var að fá mjög gott... af möguleikunum = mjög gott, gott, sæmilegt og ófullnægjandi, s.s. ég fékk MJÖG GOTT í:

Ástundun

Stundvísi

Framkomu

Tekur Fyrirmælum

Vandvirkni

Stjálfstæð vinnubrögð

Samvinnu

Meðferð verkfæra

og

Afköst

Síðan var einnig skrifuð lýsing á helstu viðfangsefni okkar í vinnunni: Gerð göngustíga, grillstæðis og gróðursetning.

Seinast skrifaði leiðbeinandi minn Olga (æðislega kúl og skemmtileg) niður þessa umsögn:

Tanja er sannur leiðtogi, hún hefur gott lag á að skipuleggja og á auðvelt með að starfa í hóp jafnt sem ein. Hún er framúrskarandi starfskraftur sem ég mæli eindregið með.

Alveg æðisleg umsögn... þetta get ég síðan farið með þegar ég sæki um vinnu...

                                                            Skólinn er einnig að fara að byrja og við þurfum að fara kaupa skóladót... Mig hlakkar ekki til að fara í 10. bekk og ég er í rauninni frekar stressuð í sambandi við allt þetta... En meira seinna...

Knús og Kossar,

Tanja Rós

                        


Posted at 01:56 pm by tanjaros
Comments (3)  

Jul 17, 2005
Danamey

Nú er bara komið að því... seinustu vikuna hef ég verið að pakka niður dótið mitt, smám saman... og á morgun er þá komið að því að ég fari til DANMERKUR!!!! Mig hlakkar svoooo til... en samt er ég alveg geðveikislega stressuð... ég fer með Maríu Krístíni og Birgir (systir afa Halldórs og maður hennar)  ásamt dótturson þeirra sem er reyndar jafn gamall mér og heitir Birgir Már... ég er dálítið stressuð þar sem ég hef hitt þetta fólk en þekki það í raun samt ekki... Váááá. Ég trúi því varla að ég sé að fara... Mamma og ég vorum í Kringlunni í gær að kaupa seinustu hlutina...

Fyrir ári síðan (+9 dagar) var þetta aðeins eitthvað sem mig langaði að gera, en núna er þetta bara orðinn að raunveruleiki... Takk elsku mamma og elsku pabbi fyrir að leyfa mér að gera þetta... ég er alveg himinlifandi þótt að ég sé dálítið stressuð...

Ég fer s.s. með Maríu Kristíni, Birgir og Birgir Már upp á flugvöll og þaðan  í fríhöfnina (þið vitið hvernig stelpur eru í aðeins ódýrari búðum). Síðan förum við líklegast í flugvélina... en málið er  að ég sit ekki hjá þeim. Við pöntuðum sætin á sitthvorum tíma, svo ég sit líklegast ekki hjá þeim... OHHHH!!! Æi þetta á samt eftir að verða mjög skemmtilegt býst ég bara við...

Verð núna að fara....

Tanja Rós                             


Posted at 05:10 am by tanjaros
Comments (2)  

Jul 9, 2005
Afmælisbarn í Dag...

Í dag er 9. júlí og ég á afmæli... ég er alveg svaka fín í flotta kjólnum mínum... orðin 15 ára! Ég veit ekki hvað við erum að fara gera, kannski förum við á Akranes að kíkja á þessa írska daga... amma og afi koma allavegann með gjafir á eftir...

Frá mömmu og pabba fékk ég ferð til Danmörku!!! Ég fer 18. júlí og kem ekki heim fyrr en 1. ágúst. Mig hlakkar geggjaðslega til!!!

Verð eiginlega fara... bless bless...

Tanja Rós

Posted at 05:28 am by tanjaros
Comments (2)  

Jul 5, 2005
For all you Americans...


For all you Americans that are reading my entries... I got this poem in an email and wanted to share it with you. It is about America and how we have come from loving our God, to the place that it is today...


America The Beautiful

 

America the Beautiful,

Or so you used to be.

Land of the Pilgrims´ pride;

I´m glad they´ll never see.

Babies piled in dumpsters,

Abortion in demand,

Oh, sweet land of liberty,

Your house is on the sand.

Our children wander aimlessly

Poisoned by cocaine,

Choosing to indulge their lusts,

When God has said abstain.

From sea to shining sea,

Our Nation turns away

From the teaching of God´s love

And a need to always pray.

We´ve kept God in our temples,

How callous we have grown.

When earth is but His footstool,

And Heaven is His throne.

We´ve voted in a government

That´s rotting at the core,

Appointing Godless Judges

Who throw reason out the door,

Too soft to place a killer

In a well deserved tomb.

But brave enough to kill a baby

Before he leaves the womb.

You think that God´s not angry,

That our land´s a moral slum?

How much longer will He wait

Before His judgment comes?

How are we to face our God,

From Whom we cannot hide?

What then is left for us to do,

But stem this evil tide?

If we who are His children,

Will humbly turn and pray;

Seek His holy face;

And mend our evil way;

Then God will hear from Heaven

And forgive us of our sins,

He´ll heal our sickly land

And those who live within.

But, America the Beautiful,

If you don´t – then you will see,

A sad but Holy God

Withdraw His hand from Thee.

                -Judge Roy Moore



Posted at 11:34 am by tanjaros
Comment (1)  

Skrýtið aftan á vörum...



Langaði að setja þetta hér, þetta er svooo fyndið... ég fór í hláturskast eftir að ég las þetta í sjónvarpsdagskránni...

 

Skrýtið aftan á vörum…

 

Leiðbeiningar á hárblásara: Notið ekki í svefni (Æi, en það er eini tíminn sem ég hef til að laga á mér hárið)

 

Á kartöfluflögupoka: Þú gætir verið sigurvegari! Þér að kostnaðarlausu. Upplýsingar ofan í pokanum (Sniðið að þörfum búðarhnuplara)

 

Á pakka utan af straujárni: Ekki vera í fötunum meðan þau eru straujuð (En það sparar svo mikinn tíma)

 

Prentað á botninn á Tiramisu eftirrétti: Snúið ekki á hvolf (Ha ha of seint, þú tapar)

 

Annar skyndiréttur: Varúð varan verður heit eftir að hún er hituð (Nei, heldurðu það)

 

Á hóstasafti fyrir 5 ára og yngri: Ekki keyra eftir notkun lyfsins (Hm…)

 

Á pakka utan af svefnlyfjum: Varúð getur orsakað syfju (Maður myndi nú vona það er það ekki)

 

Á frosnum skyndirétti: Matreiðslutillögur – afþýðið (EN það er náttúrulega bara tillaga)

 

Á jólaljósaseríu: Notist aðeins innan- og utandyra (En ekki hvar í geimnum?)

 

Á pakka utan af matvinnsluvél: Notist ekki í öðrum tilgangi (Nú er ég forvitin)

 

Á pakkningum af beittum eldhúshníf: Geymið ekki í börnum (Vonum bara að þetta sé prentvilla)

 

Á hnetupoka frá flugfélagi: Leiðbeiningar – opnið pakkann og borðið hnetur (Ætli fólk hafi oft misskilið þetta)

 

Á sænskri keðjusög: Reynið ekki að stoppa keðjuna með höndunum (Réttið upp hönd sá sem hefur prófað það, ha ha ha)

 

Á súperman búningi: Að vera í þessum búningi gerir þér ekki kleyft að fljúga (Í alvöru, get ég fengið endurgreitt)

 

Aftan á sápustykki: Leiðbeiningar – notið eins og venjulega sápu (Hm.. sem er hvernig?)


Vona að þið hafið haft gaman af að lesa þetta!!!


Posted at 11:20 am by tanjaros
Make a comment  

Vinna, þreyta og bráðum... 15 ára...


Ég er í vinnu. Ég vinn í Heiðmörk. Það er gaman. Það er þreytandi...

Djók... Allt þetta er samt rétt. Ég er núna yfir sumarið að vinna 25 daga í Heiðmörkinni, á vegum unglingavinnunar. Það getur verið gaman,  en samt mjög þreytandi. Ég er í ~15 manna hóp, en hann er alveg æðislega fjölbreyttur og skemmtilegur. Strákarnir eru algjörir grallarar, stelpurnar fríkaðar, en allir mjög góðir vinir. Hópur samanstendur af krökkum úr Ölduselsskóla og úr Seljaskóla. Ég er búin að hitta mjög marga skemmtilega krakka og eignast marga vini frá Seljaskóla! Þetta er æðislegt félagslíf þótt að, að grafa grillstæði og leggja malarstíg eru ekki beint það sem okkur þykir skemmtilegast!

Annar er allt fínt hjá mér... Vinur minn frá vinnunni átti afmæli í gær, 4.júlí, en það er akkúrat þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna (Independance Day)!

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ JÓI!!!

OG

HAPPY INDEPENDANCE DAY USA!!!

Svo á ég líka afmæli eftir bara nokkra daga... en ég verð 15 ára 9. júlí... einnig á vinkona mín frá vinnunni afmæli 10. júlí (Miriam)...

Núna þarf ég að fara, en óska öllum gott kvöld og skemmtilegt sumar!!!

Tanja Rós!!!

+ allt þetta vil ég setja hér þjóðhátíðarlag USA... í tilefni dagsins (í gær)... út af því að ég er svo mikill ameríkani í mér!!!

The Star Spangled Banner

 

O say can you see,

By the dawn´s early ligt,

What so proudly we hail´d

At the twilight´s last gleaming?

Whose broad stripes and bright

stars,

Thro´ the perilous fight,

O´er the ramparts we watch´d,

Were so gallantly streaming?

And the rocket´s red glare,

The bombs bursting in air

Gave proof thro´ the night

That our flag was still there.

 

O say, does that star-spangled

Banner yet wave

O´er the land of the free

And the home of the brave.

 


Posted at 11:17 am by tanjaros
Make a comment  

Jun 21, 2005
Byrjuð aftur...

Núna er ég aftur byrjuð að blogga. Ég bið ykkur að fyrirgefa þetta hlé, en þið vitið hvernig það er að vera í fullt af prófum, að klára skólaár og byrja í nýrri vinnu yfir sumarið. Svo í stuttu máli er þetta sem kemur hér hvað hefur verið að gerast í lífi mínu.

Ég er "officially" búin með 9. bekkinn. Ég var alveg rooosalega ánægð með mínu flottu einkunnir og hvernig allt endaði. Reyndar er ég ekki neitt rosalega happy yfir það að umsjónarkennarinn minn er að fara til Lúndúna í listháskólann þar að æfa ballett. Hún er alveg frábær ballett kennari og einn besti kennari sem ég hef hitt og fengið þann heiður að láta kenna mér. ( Love you Katla) Núna er þá s.s. sumarfrí hjá mér. (NOT) ÉG er að vinna í unglingavinnunni 7 tíma á dag og þarf að vakna kl. 06:30-07:00 um morguninn á hverjum degi. Við erum að vinna í Heiðmörk og erum að leggja stíga þar. Leiðbeinandinn minn heitir Olga og hún er alveg meiriháttar. Ég er að vinna með nokkrum krökkum sem ég þekki en hef hitt helling af öðrum krökkum sem eru m.a. úr Seljaskóla og Fellaskóla.

Auk þess að vinna hef ég gert margt og mikið. Fyrir u.þ.b. mánuði síðan fór ég með pabba, Sahara Rós og Alex Ívari á Star Wars Episode 3, The Return of the Sith. Myndin er alveg meiriháttar. Fyir alla þá næstum-því-Star-Wars-nörda eins og mig (aka. allir þeir sem hafa gaman af Star Wars myndunum) er þetta rosalega góð mynd. Einnig fór ég á nýjustu Batman myndina, Batman Begins núna seinustu helgi og einnig var hún mjög góð. Báðar myndirnar voru spennandi og bara svakalegar svo að annaðhvort varstu haldandi í sætið þitt (eða næsta mann) út af því að þú varst stressuð/stressaður eða þú varst grátandið út af því að eitthvað sorglegt gerðist. Ég mæli með báðum myndunum... ÞÆR ERU MEIRIHÁTTAR!!!

Nún hef ég ekki mikið meira að segja, ég er dáldið þreytt eftir langan vinnudag...

En, ég vil endilega hvetja ykkur til að hlusta á nýja útvarpsþáttinn minn yfir sumarið sem heitir TRINITY og er á hverjum fimmtudegi kl. 17:00!

Tanja Rós

P.S. Ég vil óska Unu Sóleyju, vinkonu minni, til hamingju með afmælið!
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ UNA!!!

Posted at 10:07 am by tanjaros
Comments (4)  

HLÉ!

HLÉ!!!

Fyrirgefið hlé...

HLÉ!!!


Posted at 09:54 am by tanjaros
 

May 14, 2005
Tveir Dagar í röð...

Í gær var svona la-la dagur. Ég var í íþróttum í fyrsta tíma en þar þurftum við að hlaupa 5 km. – hringinn í kringum seljahverfið . Júhú! (right) Ég var síðan svo þreytt eftir þetta, það var ekki eðlilegt. Síðan fór ég í stjörnufræði. Þar var stelpa í bekknum mínum – Sigrún með kynningu um svarthol. Kynningin var bara fín, nema í byrjun tímans voru smá leiðindi með skjávarpan. Síðan fór ég í lífsleikni með umsjónarkennara mínum. Umsjónarkennarinn minn er rosalega fínn en þessir tímar eru bara yfirleitt svo leiðinlegir. Strákarnir tala og tala og mér finnst bara við stelpurnar vera í svo miklum minnihluta í þessum bekk. Það er eins og við skiptum engu máli, vegna þess að svo mikil orka og athygli þar að fara í þessa háværu og leiðinlegu stráka. Eftir lífsleikni fór ég í stærðfræði-tíma en þar forum við í tíma-könnun með gröfum og allt þannig. Dagurinn í heild var bara fínn en næsta vika, sem er svona eiginlega “formally” seinasta skólavikan okkar (síðan eru próf o.s.frv.) , verður  svo stressandi það verður mikið álag. Ég er að fara í bæði líffræði-próf á fimmtudaginn og síðan stjörnufræði-próf á föstudaginn. Bæði prófin eru úr miklu og erfiðu efni, en ég þarf að lesa 60 bls. bara fyrir stjörnufræðina!!! Síðan fór ég í flautu tíma. Hann var fínn en þetta var allra síðasti tíminn minn fyrir skólalok. Á þriðjudaginn í næstu viku eru prófin og síðan tónleikar og eftir það skólaslit. Váá... allt er bara að verða búið! Um kvöldið áttum við skemmtilega stund með pabba mínum á meðan mamma fór með systur sinni (frænku minni) í bíó á The Wedding Date sem hún sagði væri mjög góð.

Hinsvegar hefur dagurinn í dag verið ok. Þegar ég vaknaði í morgun náði ég í bók sem ég fékk frá mömmu og pabba þegar þau komu heim: Princess Diaries 5 - Princess in Pink. Hún er mjög skemmtileg. Ég fór síðan á fætur þegar mamma vaknaði. Við kláruðum saman að horfa á myndina For richer og poorer - æðisleg mynd! Síðan fórum við stelpurnar fram og gerðum sameignina. Júhú! Það tók meirihluta dagsins. Síðan lærði ég eitthvað og fór út í sjoppu með systkinum mínum. Við keyptum okkur bland-í-poka en núna eru yngstu stelpurnar að horfa á Spirit - Stallion of the Cimmaron (Villti Folinn) en Sahara Rós og Alex Ívar eru úti í fótbolta. Mamma og pabbi hinsvegar, eru úti saman einhversstaðar að fá sér að borða. Þegar þau koma heim ætlum við síðan að horfa á mynd og eiga það notalegt.
Auk þetta vil ég benda á eina síðu sem mér var bent á. Þetta er saga um ótrúlega guðs-konu! Endilega skoðið þetta!!!
http://www.historyswomen.com/joni.html

Tanja Rós




Þetta finnst mér vera gott vers þar sem ég pæli dáldið mikið út í það hvernig næsta vika verður og þeir sem þekkja mig vita það að ég verð alveg hryllilega stressuð yfir öllu!

 

Matteus 6:34

 

34Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.

Mathew 6:34

 

34Therefore do not worry about tomorrow, for tomorrow will worry about its own things. Sufficient for the day is its own trouble.



Posted at 12:49 pm by tanjaros
Comments (3)  

May 11, 2005
FReaKAði GJörSAmlEGa úT!!!


Núna er 11. maí eins og sést kannski hér að ofan.  Skólinn var bara fínn í dag. Ég svaf vel út í gatinu , fór í sturtu, hafði mig til, smurði nesti og lagði af stað inn í skólann.   Reyndar gerðist dáldið mjög skrýtið. Þegar ég var búin í sturtu fór ég að reyna við að skipta hárinu aðeins á hlið.   En þessi skipting leiddi í ljós litla hvíta "hluti" við hársvörðinn.  Ég totally freakaði út! Alexandra Líf, litla systir mín hafði fengið lúsarmiða frá hjúkkunni í gær svo að það fyrsta sem ég hugsaði var lús!!! Eins og ég sagði freakaði ég út og hringdi í mömmu í sjokki.  Þegar hún svaraði var það fyrsta sem ég spurði hana var: er ég með flösu?  Ég vildi vera viss áður en ég klikkaðist. Hún var ekki viss og spurði mjög ringluð af hverju. Eftir útskýringu og nokkrar athuganir sagði hún mér að fara fyrr niður í skóla og tala við hjúkkuna áður en ég færi í tíma.   Ég gerði það og til allra hamingju?!?... var ég bara með mikla flösu! Hjúkett?!?!?!   Þessi dagur byrjaði s.s. dáldið "skemmtilega".

Í stærðfræðinni þá vorum við að læra í frh. um gröf og formúlur og allt í kringum það. Í dag þá lærðum við að gera fleygboga og töflur og allt með því.   Ég var síðan svo stolt af sjálfri mér þegar ég kom heim og kláraði heimavinnuna mína. Ég prófaði að setja formúlu í flottu, grafísku reiknisvélina mína og náði að setja upp fleygboga og línu. Ég var svoooooo stolt!

Þetta var s.s. góður dagur. Ég er núna búin að setja fleiri spurningar í braventet könnun mína sem ég hvet ykkur endilega til að skoða og svara!!! Slóðin er: http://www.olduselsskoli.is/tolvur/a04-05/tanja2/vote.html

Tanja Rós


Posted at 12:35 pm by tanjaros
Comments (2)  

Next Page

   

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

Hæ hæ... Ég heiti Tanja Rós Ívarsdóttir og ég er 14 ára stelpa, verðandi 15 9. júlí. Ég er með brúnt, axlarsítt hár sem er litað me fullt af ljósum og rauðum strípum. Augu mín eru blá-grá-græn en ég er u.þ.b. 1,58 á hæð.
Hi, my name is Tanja Rós Ívarsdóttir and I am a 14 (going on 15 next 9th July) girl. I have brown shoulder-length hair, with red and blonde highlights. My eyes are blue-grey-green and I am about 158 cm high.

Hér fyrir neðan er fullt af skemmtilegum hlutum t.d. gestabók og ýmislegt annað. Endilega skoðið alla síðuna því að margt leynist hér og þar, þar sem ekki allir leita!
Her below are many fun and interesting things, like my Bravenet Guestmap. Please feel free to check the whole site out because many thing may be found where you were not expecting them!
Eins og ég hef sagt heiti ég Tanja Rós. Ég er 14 ára en verð bráðum 15 ára 9. júlí 2005 - en þá á ég afmæli. Ég er al-íslensk þótt ég átti heima úti í USA í 8 1/2 ár. Ég bý hjá mömmu minni og pabba, Hrefnu Rós og Ívari, ásamt 4 systkinum mínum. Þau heita: Sahara Rós - 13 ára, Alex Ívar - 11 ára, Alexandra Líf - 9 ára (10 í október) og Rebekka Lind - 7 ára (8 í október). Það sem ég elska að gera er að lesa og vera hluti af unglingastafi Vegarins. Þar hef ég farið síðan um áramótin, en á þessum stutta tíma finnst mér að ég hafi orðið hluti af þessari "fjölskyldu." Þar eru bestu vinir mínir og þar upplifi ég alvöru kristið félagslíf á meðal annara kristna unglinga. Einnig hef ég gaman af að eyða tíma í tölvunni. Þá er ég ekki að tala um að fara á netið og vera í einhverjum ógeðslegum leikjum. Ég hef gaman af að fikt í forritum og skoða og læra ýmsa hluti í sambandi við þær. Það sem mér finnst leiðinleg að gera er að taka til í herbergi mínu (ég geri það samt) og að gera tonn af heimavinnu. Ég elska fjölskyldu mína og GUÐ.
Like I have said, my name is Tanja Rós. I am 14 years old but will be 15, July 9th, 2005 - but that is my birthday. I am icelandic even though I lived in the USA for 8 1/2 years. I live with my mom and dad, Hrefna Rós and Ívar, along with my 4 brothers and sister. Their names are: Sahara Rós - 13 years old, Alex Ívar - 11 years old, Alexandra Líf 9 years old (10 in October) and Rebekka Lind - 7 years old (8 in October). My main interests are these: I love reading and being a part of the christian youth group - "The Way". I have been attending this youth group since about new years but in this short time I have really begun to feel like a part of this amazing "family". My best friends are there and this is my christian social life with my friends. I also love spending my time in computers. Now I´m not talking about staying on the internet in some gross games. I love trying stuff in all kinds of programs and learning all kinds of stuff about them. The things that aren´t exactly at the top of my "I love to..." list is cleaning my room (I do it though it´s not fun) and doing tons of homework. I love my family and GOD.
Aðrar Skemmtilegar Síður
Heimasíða Mín!!!
Heimasíða Elísubetar
Heimasíða Unu
Önnur Skemmtileg blogg
Blogdrive Ömmu Árnýjar
Eldra blogg Ömmu Árnýjar
Blogg Sahara Rós
Blogg Alexöndru Lífar
Blogg Söndru (vinkonu minnar)
Blogg Elísubetar (vinkonu minnar)
Blogg Unu (vinkonu minnar)
Blogg Vinnuskólahóps míns!
Kara Rut!!!
Benni (úr Veginum)
Birna (Mrs. Wiencke...)
Dagbjört
Dagný!
Elsa
Helga (úr veginum)
Siggi (úr Veginum)
Afmæli!!!
Ég fékk þessa hugmynd frá öðru bloggi, en þetta eru s.s. sérstakir dagar mínir... afmæli vina og vandamanna, brúðkaupsafmæli og sérstakir atburðir, en ég vil endilega að þið skoðið þetta af og til, því að alltaf er nú eitthvað að gerast!... Ef þið eruð ekki á listanum, skrifið mér þá á tanjaros@yahoo.com og ég skal bara setja ykkur inn á 1, 2 og 3!!!
2005
Janúar!
1. Jan... Nýársdagur 1. Jan... Tóti á afmæli
Febrúar!
???
Mars!
7. mars... Elva Ósk á afmæli 8. mars... Alex Ívar á afmæli 9. mars... Pabbi á afmæli 11. mars... Brúðkaupsafmli mömmu og pabba
Apríl!
2. apríl... Sahara Rós á afmæli
Maí
???
Júní
21. júní... Una Sóley á afmæli
Júlí
6. júlí... Sandra Rós á afmæli 9. júlí... ÉG á afmæli 12 júlí... Amma Sólveig á afmæli
Ágúst
7. ágúst... Afi Halldór á afmæli 10. ágúst... Davíð Hansen á afmæli 11. ágúst... Daníella Hansen á afmæi
September
6.?sept... Sólveig Rut á afmæli
Október
13. ókt... Alexandra Líf á afmæli 31. ókt... Rebekka Lind á afmæli
Nóvember
5. nóv... Elísabet á afmæli
Desember
24. des... Aðfangadagsnótt 25. des... Jól 27. des... Afi Sigurður á afmæli 29. des... Amma Árný á afmæli 31. des... Nýárskvöld
MY PHOTO ALBUM!!!
Hérna er mynda-albúmið mitt... ef þið "klikkið" á myndina hér af litla flautuspilaranum farið þið inn á aðra síðu þar sem hef sett myndir frá mér... Í byrjun eru kannski ekki svo margar myndir, en verið þolinmóð og skoðið oft, því að oftast er það bara byrjunin sem tekur mestan tíma...
EN... vegna þess að ég vil ekki að hver sem er er að skoða albúmið mitt, þá þarf að hafa "password" í það... til þess að fá það þá skrifið mér bara bréf og segið til nafns og þá sendi ég þér það sem þú þarft til að geta skoðað myndirnar mínar!!! Einfaldlega "klikkið" hér á Diddlina með stjörnunum og skrifið email til mín...
Here is my photo-album... if you click on the little flute player above you will go to another site where I have putt pictures from me and my life... There might not be so many pictures to begin with, but be patient and check often, because most often it is just beginning that takes some time...
But... there is one catch... I don´t want just anyone on the internet to be looking at my pictures, so there is a special password you will need to get into the sight... To get the password you simply have to click on Diddlina with the stars here above, and send me a email saying who you are and that you would like to se my photo album. I will reply and give you the password and VOILA!
The Christian Alphabet!!!
Although things are not perfect
Because of trial or pain
Continue in thanksgiving
Do not begin to blame
Even when the times are hard
Fierce winds are bound to blow
God is forever able
Hold on to what you know
Imagine life without His love
Joy would cease to be
Keep thanking Him for all the things
Love imparts to thee
Move out of "Camp Complaining"
No weapon that is known
On earth can yield the power
Praise can do alone
Quit looking at the future
Redeem the time at hand
Start every day with worship
To "thank" is a command
Until we see Him coming
Victorious in the sky
We´ll run the race with gratitude
"X"alting God most high
Yes, there´ll be good times and yes some will be bad, but...
Zion waits in glory... where none are ever sad!
The shortest distance between a problem and a solution is the distance between your knees and the floor.
The one who kneels to the Lord can stand up to anything...
God Bless!!!
Free Vote Caster from Bravenet.com Free Vote Caster from Bravenet.com
Þetta hér er gestakortið mitt. "Klikkið" á efri takkan og þá opnast nýr gluggi. Í þessum glugga getið þið ýtt á takka efst upp, þar sem stendur POST. Veljið síðan stað á kortinu, hvar sem er. Ekki vera öll heimakær og reyna að troða ykkur á Ísland. Hvar þið eruð í heiminum skiptir ekki máli. Þá opnast annar gluggi þar sem þið þurfið að skrifa inn þær upplýsingar sem beðnar eru um og lítinn texta til mín!!! Takk fyrir að skoða! ATH! Endilega skrifið eins oft og þið viljið, hvort sem það er 5 sinnum á dag eða 1 sinni á mánuði. Þetta er í raun gestabók í öðru formi!
This is my guestmap. Click on the upper button and then a little "pop up" will pop up on your screen. Somewhere near the top there is a button called POST. Just click on that button and pick a place on the map. Don´t all be homesick and try to squish yourself on Iceland. Where you put yourself in the world doesn´t matter. After that you will get another pop up where you will have to put some informationa and write a little message!!! Thank You for writing! One other thing! Feel free to write as often as you want. It doesn´t matter whether it is 5 times a day or once a month. This is just a guestbook in another form (the form of a map)!
Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com
Til að skrifa mér "klikkið" þá á litlu myndina hér fyrir ofan. -Tanja Rós
To write me, click on the little icon her above. -Tanja Rós

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed